Then we meet again
BLoggrúntur
Klukkan
Dagsetning
8. febrúar 2012
22.10.2008 13:17:35 / kbs8081

FORTÍÐARÞRÁ

Góðir hálsar (og Ægir:lol:).    
    
Kominn tími á hitting....................er þaggí?:d
Ég er allavega æst í að hitta ykkur fljótlega8|

Hvernig líst ykkur á að fara t.d. saman á Fjöruborðið á Stokkseyri að borða, e.t.v. e-ð föstudagskvöld á næstunni?:)

Svo gætum við gert e-ð meira í framhaldinu ef við verðum í stuði:haha: 

Eða þá að hittast heima hjá einhverjum ef við viljum frekar eða á e-m öðrum stað..............en allavegana komið með ykkar skoðanir og kýlum á þetta:!:

kv. Sóley.


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.07.2008 10:25:58 / kbs8081

jæja elskurnar

Hún Eygló okkar greinilega skoðaði myndirnar í gær því að hún hrökk svona allsvakalega í gang og fæddi stúlkubarn í morgun um kl 06. INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ ÞAР (:

Annars þá er ég búin að setja allar mínar myndir inn. Endilega ef þið eigið einhvejar þá senda mér á vettlingar@hotmail.com (:

mútsjó gratsí...Gulla

» 8 hafa sagt sína skoðun

27.07.2008 23:07:35 / kbs8081

Klúðrinu reddað

Haldiði ekki að Tjellingin hafi reddað myndaveseninu ;) vonandi allavega sést núna hverjir eru á myndunum.
það sem einn bekkjarfelagi okkar er komin á steypirinn og rúmlega það þá ætla ég að senda henni linkin á síðuna, segja henni að skoða og vonandi hlær hún svo mikið að litla lífið sem hún ber undir belti ákveður að koma í heiminn :haha:

luv....Gulla

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.07.2008 21:44:35 / kbs8081

helló pípól

Já, betra er seint en aldrei...er það ekki (;
Næstum ÁRI eftir hittingin okkar góða varð mér svo hugsað til ykkar og nýju nefndarinnar að ég ákvað á kíkja á síðuna okkar góðu. Jújú, allt í sínum stað og fullt af commentum um MYNDIR....vúpps 8| Eitthvað hafa kjellingarnar verið þunnar eftir reunionið og engar myndir skiluðu sér á síðuna....  Ég er í þessum skrifuðu að setja myndir á síðuna...en hold on....þær eru ROSALEGA óskýrar ALLAR...veit hreinlega ekki hvað í fjandanum ég gerði þegar ég var að minnka þær og ég efast að það sjáist á sumum hver er á myndinni :$ Sumar myndanna eru frá kvöldini áður þegar ég undirrituð, Lóló og Eva "lentum" á svaka fylleríi (já það gerðist eiginlega ALVEG óvart...svona án gríns!!) ég læt þær fljóta með.

Svo fer ég að heimta annan hitting því þið eruð svo skemmtileg... (:  DÍLL??

kveðja fra Selfossi...Gulla

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 14:10:58 / kbs8081

Geðveikt gaman að hitta ykkur ÖLL

 

HÆ og takk fyrir síðast. Það var alveg frábært að hitta ykkur öll og þá sérstaklega þið sem ég hef ekki hitt í hva 7-10 ár...þetta var geggjað. Gaman að fá fréttir af liðinu, sá ykkur öll í glasi og svonna hoho.... (: Ógislega gaman að syngja með ykkur öllum og ég vil sérsaklega þakka Sigga fyrir að hafa sungið um hana Gunnsjöfn. Og Fífa, lagið sem þú "kannt" að spila er ÆÐI. Hef heldur ALDREI verið eins náin Sigga eins og ég var *roðn* ;) Æjjj veit eiginlega ekki hvað ég á að segja, er svo glöð að loksins að hafa hitt ykkur öll og svo ég hætti nú þessu sentimental kjaftæði þá vil ég minna á næstu nefnd.... (:

 ÞÓRUNN, ÓLI, ÚLLA og SISSI..........

Við gamla nefnd óskum eftir hitting haust 2008 og svo á 5 ára fresti eftir það.....en það verður nýja nefndin að spekúlera og spá um....

Elska ykkur ÖLL ellllskurnar.... knús og kram...Gullan


» 11 hafa sagt sína skoðun

16.08.2007 11:01:53 / kbs8081

Gjöf og fl.........

HÆ HÓ 2 dagar í bekkjarmót! (:

Það var nefndar hittingur í gær sem gekk líka svona ljómandi. Gjöfin sem við ætlum að gefa skólanum var ákveðin og það er s.s ljóðabókin sem hún Eygló gaf út núna á árinu. Gott að gefa svona flotta gjöf og styrkja bekkjarfélaga í leiðinni, góð hugmynd HA!!?? (:

Svo sá ég að Fífa var að auglýsa eftir fari í skilboðum og Þórunn að auglýda laust pláss. Ég gef mér bessaleyfi að setja það hér inn svo að allir sjái (;

FÍFA:ég var að velta fyrir mér hvort ég gæti fengið far með einhverjum úr reykjavík á laugardagsmorgun? Endilega látið mig vita ef það er ferð/pláss/í boði. Látið mig líka vita ef það er einhver í farvandræðum því þá reyni ég að fá lánaðan bíl og fleiri geta komið með mér.
hlakka rosa til.
ást og bylting
fífa s: 697 6782 og audurk@hi.is

15.08.2007 09:10:25     »    Þórunn »
ÞÓRUNN:

hæhæ. ef einhverjum vantar far á föstudagskvöldið þá er pláss hjá mér.
Þórunn s: 8460758

Fleiri eru tilkynningar ekki í bili.....sjáumst síðar.....Gulla myndasjúka


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 13:36:19 / kbs8081

senn líður að bekkjarmóti....

Það átti að vera nefndar hittingur í gær en formaður nefndarinnar er lasin og því var fundinum frestar þar til í DAG.  Vonum að hún hristi öll veikindi af sér fyrir helgina (:

Annars er ég orðin ansi spennt og það verður mjög góð mæting. Allur "9. bekkur" mætir og eins og staðan er núna þá eru 4 "10 bekkingar" sem mæta ekki.  Jörðin hefur að vísu gleypt 2 "10. bekkinga" en það eru Sæmi og Maggi Rób. Ég er búin að sms-a þá og hringja og ekkert kemur til baka. *DÆS*. Við gerum það besta úr málinu er þaggi?!? (:

Það má líka alveg senda mér myndir af ykkur, annars neyðumst við til að gúggla ykkur og finna mynd :Þ

 Bið að heilsa í bili Gulla myndasafnari


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 14:25:55 / kbs8081

Nefndin hefur hist aftur og rætt...

Málin...

Og það gekk svona glimrandi vel :D

Niðurstaðan er nokkurn veginn svona:                                                                              Ákveðið var að hafa í þetta sinn Makalaust því eins og þið vitið þá er alltof langt um liðið síðan við hittumst síðast..ekki satt 8)                                                                    

Laugardaginn.18.Ágúst                                                                                                                  kl: 15:00 er mæting hjá Kirkjubæjarskóla, í skólanum, í skólanum er skemmtilegt að vera....

Þar ætlum við að skoða skólann okkar, gefa honum einhverja fallega gjöf og auðvitað rifja upp gamlar og góðar minningar 8| . Svo hver veit nema einhver leynist í skólanum ;) sem ætlar að kasta á okkur kveðju :haha:

í skólanum ætlum við aðeins að stoppa og kannski væta kverkar okkar, því þegar svona er langt liðið frá að mörg okkar hafa hist þá veitir ekkert af því.

Um kl. 16:30 verður boðið upp á smá óvænt muuuhhahahahhaha :klikk: (ekkert slæmt samt)

Um kl. 18:30 verður haldið sem liggur leið í okkar gamla "íþróttahús" og þar verður svaka flott hlaðborð á vegum Systrakaffi, gefum þeim gott klapp Takk Takk Elli og Gummi. :lol: :lol: :lol:

Þar ætlum við að vera saman og rifja upp enn meira skemmtilegt, kannski skoða myndir og hlæja vel og lengi.

Einn nefndarmaðurinn verður með gítarinn á herðum sér og mun hann halda uppi gleðinni, auðvitað tökum við undir með honum :haha: lalalalallalalalaaaaa 

Nú þegar líður á kvöldið, þá ætlum við að færa okkur á tjaldsvæðið (ef veður leyfir) þar sem við erum búin að fá smá skika útaf fyrir okkur og vonandi mætið þið sem flest með tjaldvagna ykkar, fellihýsin, já eða hjólhýsin og svo má nú ekki gleyma gömlu góðu tjöldunum ef þið hafið ekkert annað (bara stemmari)                                                                                        Þar verðum við með ekta útilegustemmningu, gítar,Öl og gos fyrir þá sem ekki drekka

Nú erum við búin að senda á alla SMS þar sem gefið var upp reikningsnúmerið, En ég set það hér inn ef einhverjir hafi ekki fengið smsið                                                                          0301-26-8081 kt: 100281-3179 upphæðin er 4000.-   

Nauðsynlegur fatnaður: Sólgleraugu, hlý föt, regnföt, gúmmítúttur, íþróttaskór, sundföt og auðvitað létt og góð föt og ef þið viljið koma svolítið fín þá endilega gerið það.

Nú er bara að greiða inn á og muna að setja nafn ykkar sem skýringu.                         Við vonum að sjá sem flesta því þið viljið ekki missa af þessu. ;)            

                           Með bestu kveðju Nefndin

Lóló - 848-2820,  Siggi Á.-823-4000,  Gulla-867-3534,  Eva Hrönn-868-3296,  Svenni-615-1002


» 13 hafa sagt sína skoðun

22.07.2007 23:51:31 / kbs8081

Fætur á sófanum

Ohh... ég man svo vel eftir því að það mátti ekki vera með fæturnar uppí sófa bekkjunum og Hann Hjartar kom og skammaði mann ef að maður var með fæturnar uppí sófa.

Einu sinni sem svo oft áður kom Hanna upp og var að skamma einhvern fyrir að vera með lappirnar uppá sófa og mér og Atla fanst mjög sniðugt að stökkva uppá bekkina og hoppa og láta eins og fífl fyrir aftan Hönnu... vildi ekki betur til en Hanna snéri sér við og flestir kennarar skólans voru að snæða hádegismat og horfðu á þetta allt saman líka... :$ hehe ... góðir tímar...

Ætli ég skori ekki næst á Sigga Árna :)

 

Kv,

Svenni 


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 23:38:25 / kbs8081

fyrirgefðu herra skólabílstjóri!!!!

Vá það muna kanski fæstir eftir þessu en þetta er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma hehe.. (þó ég vildi :S )    

   Það voru þessar blessaðar aríur sem við vorum alltaf að gaula í skólabílnum á leið út í Tungu og Álftaver, þetta fór einfaldlega þannig framm að maður átti að gaula sem skrækast og fara eins hátt upp með röddina og maður gat.     Ég , Sóley og Oddný systir vorum sennilega mest í þessu en ég skal hengja mig upp á það að Sæmi prufaði líka hehe, man ekki alveg hvort Tvíburarnir og Maggi tóku þátt í þessu en mig minnir það J

 Þetta hlaut reyndar að hafa verið svaka fínt því aldrei skammaði skólabílstjórinn okkur ;)   

kv siggi vals  

   p.s held að textinn hafi verið aaaahahahaaaa aaaahahahahaaaaa aaahahaahahahahahhahahahaaaa   

Skora á Svenna flugmann til að koma með næstu minningu.

 

» 7 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 09:26:18 / kbs8081

MINNING - áskorun Sóley

Muniði eftir hvað það var gaman að sulla í læknum, labba í gegnum rörið og svona. Og hugsið ykkur þetta var náttlega skítalækur8| Ég átti svona bleika og hvíta LA Gear skó og það kom ekki góð lykt af þeim eftir þetta:$ :D

Einu sinni tókum við okkur öll saman á heimavistinni og hentum Fannari (stóra bróðir Oddnýjar og Sigga) út í læk. Hmm...gæti flokkast undir einelti í dag en nei nei hann var örugglega eitthvað búinn að stríða okkur;)

Ég skora á Sigga Vals að koma með næstu minningu!:D

-Sóley-


» 8 hafa sagt sína skoðun

07.07.2007 15:17:12 / kbs8081

Áskorun - Eygló

Ok..here comes..

Munið þið eftir plakatastríðinu í skólastofunni okkar í KBS? Vá hvað við stelpurnar (,,kellingarnar") vorum orðnar þreyttar á FENDT traktoraplakötunum!! (vá þetta var erfitt, mig langaði að segja svo margt! hehehehe)

Ég skora á Sóley að koma með næstu minningu :)

  


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 22:14:49 / kbs8081

Dagsetning

hehe sniðug hugmynd Eva muhhaaaa...

Ég vildi bara láta vita að dagsetning fyrir fjörið er ...........

það er...... :haha:    18.Ágúst  :haha:  já já þá gerist það.... nánari Infó um það kemur eftir nefndarfundinn í næstu viku þannig að..... stay TUNED :lol:   og munið að senda myndir gamlar og nýlegar ( svona fjölskyldumynd eða einstaklingsmynd eða bæði ef þið hafið gaman af að skoða margar myndir af ykkur)

 Kveðja Lóló

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 19:38:52 / kbs8081

Áskorun

ég skora á ykkur að taka þátt í smá söguleik

 

...hver man ekki eftir því í Vestmannaeyjarferðinni þegar Óli labbaði á ljósastaur og gleraugun hentust inn í næsta garð :D 

 

ég skora á Eygló Idu að koma með næstu minningu

 

kv Eva Hrönn 


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 22:21:30 / kbs8081

myndir, myndir.........

Ég geri nú samt fastlega við því að flestir eða jafnvel ALLIR séu með myndirnar sínar í albúmum en ekki á tölvuvæddu formi. Þess vegna er líka snilld að senda mér myndirnar í "hægfara"  PÓSTI (s.s á pósthúsið og þaðan hjóla/labba bréfberarnir póstinn út skiljiði???? hehe). Við skönnum þær inn á tölvutækt form og ég sendi þær til baka (: snilld

 Við tökum líka við ÚTKLIPPTUM:lol: myndum....einhverra hluta vegna þá var svaka tíska að klippa manneskjuna ÚT og hengja upp..:lol:...án bakgrunns, en það er bara svalt! (:

Plííííís ,verið nú góð og sendið allt til mín sem gæti verið skemmtilegt (gömul tímabréf, ástarbréf já eða snýtibréf8|...hohooo)

KV, Guðlaug Margrét, Laufhaga 16, 800 Selfoss;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2